BYR fasteignasala kynnir í einkasölu ALDINMÖRK 8 ÍBÚÐ 103, 810 Hveragerði. Fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi í Edenbyggð Hveragerði. Stutt í alla almenna þjónustu s.s. skóla og leikskóla. Smellið hér fyrir staðsetningu. ALDINMÖRK 8 ÍBÚÐ 103, fyrsta hæð til vinstri. Íbúð 76,4 m² og ge... Sýna meira
BYR fasteignasala kynnir í einkasölu ALDINMÖRK 8 ÍBÚÐ 103, 810 Hveragerði. Fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi í Edenbyggð Hveragerði. Stutt í alla almenna þjónustu s.s. skóla og leikskóla. Smellið hér fyrir staðsetningu. ALDINMÖRK 8 ÍBÚÐ 103, fyrsta hæð til vinstri. Íbúð 76,4 m² og geymsla 3,5 m² samtals 79,9 m² samkvæmt skráningu HMS.Skipulag íbúðar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign er sér geymsla og vagna- og hjólageymsla. Nánari lýsing: Anddyri með fataskáp.Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er úr alrými út á hellulagða verönd. Eldhús, sérsmíðuð innrétting, AEG sjálfhreinsandi blástursofn í vinnuhæð, spanhelluborð og þunn útdraganleg vifta sem fellur upp undir efri skáp. Stálvaskur og Grohe blöndunartæki eru í eldhúsinu og innbyggð LED lýsing undir efri skápum.Hjónaherbergi er með fataskápum yfir heilan vegg. Barnaherbergin eru tvö bæði með tvöföldum fataskáp. Baðherbergi, flisar á gólfi og á veggjum í sturtu, upphengt salerni, vaskinnrétting, speglaskápur, Grohe blöndunartæki. Þvottaaðstaða er á baðherbergi, sérmíðaður skápur fyrir þvottavél og þurrkara.Gólfefni: Harðparket er á alrými og svefnherbergjum. og í stofu. Flísar á anddyri og baðherbergi.Sér geymsla er í sameign í kjallara. Í sameign í kjallara er vagna- og hjólageymsla og inntaksrými. Lyftan fer niður í kjallara. Nánar um húsið, T.ark arkitektar eru aðalhönnuðir hússins. Aldinmörk 8 er þriggja hæða fjölbýli, í húsinu eru 9 íbúðir, þjár á hverri hæð. Húsið er staðsteypt og klætt að utan með málm - og timburklæðningu. Lyfta er í húsinu sem tengir kjallara og hæðirnar þjár. Sér inngangur er íbúðina. Sameiginleg lóð er frágengin, sorptunnuskýli. Miðlægt torg er á milli húsanna á svæðinu þar sem eru fjögur lítil gróðurhús sem íbúar svæðisins geta leigt af sveitarfélaginu til eigin nota. Lóð er sameiginleg 654,1 m² leigulóð. Bílastæði eru í sameign. Húsfélag er starfrækt í eigninni. Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:Fasteignanúmer 250-6255.Stærð: Íbúð 76,4 m². Geymsla 3,5 m² Samtals 79,9 m².Brunabótamat: 47.250.000 kr.Fasteignamat: 52.350.000 kr.Byggingarár 2019.Byggingarefni: Steypa.ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali - Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.Um skoðunarskyldu:Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala