Borg fasteignasala og María Mjöll kynna Álakvísl 48, fjögurra herbergja íbúð á tveimur hæðum í þríbýlishúsi með sérinngangi. Heildarfermetrafjöldi eignarinnar er 136,2, þar af er stæði í lokaðri bílgeymslu sem telur 29,7 m2. Skipulag neðri hæðar: Sérinngangur, forstofa, gestasalerni, eldhús, stofa.
Efri hæð: þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottaaðstaða inn á baðherbergi, stigi upp á risloft sem er ekki inn í uppgefinni fermetratölu.
Nánari lýsing: Steyptar tröppur eru upp að eigninni og gengið er inn um sérinngang. Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp, þar á móti er gestasalerni, flísar á gólfi og upphengt salerni. Eldhús með flísum á gólfi, ljós innrétting með skápum ofan og neðan borðplötu, ofn í vinnuhæð, borðkrókur er í eldhúsi við glugga. Stofa með parketi á gólfi og útgengi er á nýendurbyggðar timbur svalir sem snúa til vesturs.
Stigi er í holi uppá efri hæðina, þar eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp, hin herbergin tvö með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi flísalagt á gólfi og veggjum, baðkar með sturtuaðstöðu, pláss fyrir þvottavél.
Stigi er uppá risloft sem er ekki inn í uppgefinni fermetratölu, en stærð þess að gólffleti er ca 20 m2, dæmi eru um að í samskonar eignum sé búið að útbúa herbergi þar.
Upplýsingar um framkvæmdir undanfarinna ára frá seljendum:2019: Stigahandrið endurnýjað
2021: Þakjárn og þakpappi endurnýjaðir
2021: Skipt um alla glugga á efri hæð
2022: Baðskápur, vaskur og blöndunartæki endurnýjuð
2025: Svalir endurbyggðar
2025: Ný eldhúsborðplata, helluborð, vaskur og blöndunartæki
Á neðri hæð hefur gler verið endurnýjað eftir þörfum og búið er að skipta út flestum glerjum.
Ofnar hafa verið endurnýjaðir að hluta.
Stutt í alla helstu verslun og þjónustu auk þess er stutt í Elliðaárdalinn sem býður uppá fallegt útivistarsvæði, göngu og hjólaleiðir.
Nánari upplýsingar veitir: María Mjöll Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8663934 eða maria@fastborg.isSkoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.