Fasteignasalan Hvammur 466 1600Ægisbraut 6 - Skemmtileg 4ra herbergja risíbúð með sérinngangi við sjávarsíðuna á Blönduósi ásamt bílskúr - Stærð 72,6 m², auk bílskúrs 35,5 m². Nýtanlegir fermetrar innan íbúðar eru fleiri undir súð.Íbúðarhúsið er með skráð byggingarár 1947 og bílskúrinn árið 1957. Íbúðarhúsið er steypt og bílskúr er steyptur og úr timbri og báðir eignarhlutar eru klæddir að utan með bárujárni. Timburgólf er á milli hæða í íbúðarhúsi.
Eignin skiptist í anddyri, forstofu, búr/geymslu, baðherbergi, eldhús, stofu og 3 svefnherbergi.
Úr
anddyri (sérinngangur)
eru tröppur upp á stigapall sem er með plastparketi á gólfi og fatahengi.
Búr/Geymsla er innanaf forstofu. Þar er teppi á gólfi, veggfestar hillur og opnanlegur gluggi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með sturtu, baðkari og ljósum neðri skápum með bekkplötu.
Í
eldhúsi er ljós innrétting, neðri og efri skápar með ofni, helluborði og viftu. Þar er einnig tengi fyrir þvottavél.
Stofa er rúmgóð með plastparketi á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með plastparketi á gólfum og lausum fataskápum sem geta fylgt með við sölu.
Bílskúr fylgir eigninni, skráður 35,5 m² að stærð, steyptur og úr timbri er klæddur með bárujárni. Bílskúrinn er hrörlegur og þarfnast endurbóta.
Annað- Nýtanlegir fermetrar innan íbúðar eru fleiri undir súð.
- Innbú getur fylgt með eigninni.
- Húsið var einangrað og klætt að utan 2015
- Endurbætur voru gerðar á þaki og gluggum 2015
- Skemmtilega staðsett hús við sjávarsíðuna.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.