Lífsverk hefur myndað sér sérstöðu vegna inntökuskilyrða og getur því boðið hærri ávinning réttinda en fæst hjá öðrum lífeyrissjóðum á almennum vinnumarkaði.
Aðild
Lífsverk er opinn lífeyrissjóður fyrir háskólamenntaða. Allir sem hafa lokið grunnnámi úr háskóla eða eru í háskólanámi geta sótt um aðild að sjóðnum.
Ellilífeyrir
Mánaðarlegur ellilífeyrir er greiddur frá 67 ára aldri til æviloka en sjóðsfélagi getur flýtt lífeyristöku til 60 ára eða seinkað til allt að 80 ára.
Örorkulífeyrir
Sjóðfélagi, yngri en 67 ára, sem verður fyrir missi starfsorku, sem svarar a.m.k. 40%, og verður af þeim sökum vanhæfur til að gegna starfi sínu, á rétt á örorkulífeyri úr sjóðnum í samræmi við áunnin réttindi hans.
Skilyrði fyrir framreiknuðum réttindum:
Hefur greitt iðgjöld til sjóðsins a.m.k. þrjú af undanfarandi fjórum árum.
Hefur greitt iðgjald til sjóðsins a.m.k. 6 mánuði á undanfarandi 12 mánuðum.
Hefur ekki orðið fyrir orkutapi sem rekja má til ofnotkunar áfengis, lyfja eða fíkniefna.
Makalífeyrir
Lífeyrissjóðurinn skal greiða fullan makalífeyri í að minnsta kosti 60 mánuði eftir andlát sjóðfélaga. Einnig skal sjóðurinn greiða fullan makalífeyri á meðan maki hefur á framfæri sínu barn yngra en 19 ára.
Barnalífeyrir
Börn eða kjörbörn, sem sjóðfélagi lætur eftir sig, er hann andast, og yngri eru en 19 ára, skulu fá árlegan lífeyri úr sjóðnum þar til þau eru fullra 19 ára að aldri.
Fullur barnalífeyrir sem greiddur er með barni örorkulífeyrisþega er kr. 5.500 á mánuði. (20.330)
Barnalífeyrir sem greiddur er með hverju barni látins sjóðfélaga er kr. 7.500 á mánuði. (27.723) 173.5
Fyrirkomulag
Samtryggingarleið:
Í samtryggingarleiðinni rennur skylduiðgjaldið allt í sameiginlegan sjóð og veitir þér lífeyrisréttindi í hlutfalli við greiðslur þínar í sjóðinn. Þessi leið veitir þér dýrmætan ævilangan lífeyri og hærri tryggingavernd hvað varðar örorku-, maka- og barnalífeyri.
Blönduð leið:
Í blönduðu leiðinni færð þú allt umfram 10% af skylduiðgjaldinu í séreign. Iðgjaldið er í heild að lágmarki 15,5% samkvæmt lögum um lífeyrissjóði og er því 5,5% ráðstafað í séreignarsjóð.
Þessi leið veitir þér aukinn sveigjanleika í útgreiðslum og hentar þeim sem vilja eiga möguleika á auknum ráðstöfunartekjum við starfslok.
Þeir sem velja blandaða leið geta þó ekki nýtt sér skattfrjálsan séreignarsparnað vegna fyrstu húsnæðiskaupa eða til að greiða inn á lán. Til þess þarf að gera samning um viðbótarsparnað.