LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / sveinn@landmark.is kynna:Um er að ræða vel skipulagt og fallegt fjölskyldu parhús á tveim hæðum á skemmtilegum útsýnisstað við Andarhvarf í Kópavogi.
Glæsilegt útsýni yfir Elliðavatn og falleg fjallasýn, gott bílaplan er framan við hús, suður-svalir og afgirt lóð.
Á neðri hæð er 2ja herbergja íbúð með sérinngangi með ágætis leigutekjum en eins er auðvelt að opna rými og tengja íbúðarhluta.
Eftirsótt staðsetning í Hvörfunum Kópavogi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, ýmsa þjónustu og stutt útí fallega náttúru.Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands: Íbúð er 247.4 fm þar af bílskúr 25.8 fm.
**EIGENDUR SKOÐA SKIPTI Á MINNI EIGN Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU**Nánari upplýsingar um eign:Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða
sveinn@landmark.isFÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.Eignin skiptist í:Aðalíbúð skiptist í forstofu, hol/gang, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, gesta og aðalbaðherbergi, þvottaherbergi, gluggalaust 29 fm rými sem að nýtist sem sjónvarpsherbergi og er geymsla þar innaf og svo er bílskúr á efri hæð.
Á jarðhæð er einnig tveggja herbergja íbúð með sérinngangi og skiptist hún í alrými (stofa og eldhús), svefnherbergi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél.
Nánari lýsing á eign:Efri hæð:Rúmgóð forstofa með fataskápum og er inngengt í innbyggðan bílskúr úr forstofu.
Gott forstofuherbergi með rúmgóðum fataskáp og gluggum á tvo vegu.
Úr forstofu er komið inná gang sem leiðir inn í aðalrými efri hæðar og þar er komið í bjart rými sem að skiptist í stofu, borðstofu og eldhús.
Stofurnar eru samliggjandi og rúmgóðar með glæsilegu útsýni og útgengt er út á bogadregnar rúmgóðar suð-austur svalir.
Sprautulökkuð eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, spanhelluborð, gufugleypir og þá er tengi fyrir uppþvottavél í eldhúsi.
Á baðherbergi er dökk innrétting með ágætis skápaplássi, salerni er upphengt og opnanlegur gluggi, búið er að leggja fyrir sturtu á baðherbergi.
Bílskúrinn er rúmgóður með góðri lofthæð, flísar eru á gólfi og hurðaopnari.
Neðri hæð: Gengið er niður fallegan flísalagðan stiga niður á neðri hæð. Hljóðplötur á vegg á leið niður.
Gangur þaðan sem að gengið er inn í rými neðri hæðar.
Tvö svefnherbergi eru á neðri hæðinni bæði með flísum á gólfi og í öðru þeirra eru mjög góðir og miklir fataskápar.
Á baðherberginu er sturta og hornbaðkar, flísar eru á gólfi og á einum vegg, vegghengt salerni, innrétting undir vask.
Stórt og rúmgott gluggalaust rými með loftræstingu sem að er í dag notað sem sjónvarps/fjölskylduherbergi og innaf því rými er geymsla.
Þvottaherbergi og er innrétting með góðu borðplássi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Útgengt er út í garð frá þvottahúsinu.
Auka íbúð á jarðhæð.Sér íbúð með sérinngangi á neðri hæðinni sem er mjög auðvelt að breyta aftur til baka.
Aukaíbúðin er með sérinngangi og skiptist í alrými með flísum á gólfi , hvít eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum, eldri eldavél og viftu.
Svefnherbergi sem er rúmgott með fataskáp og flísum á gólfi og baðherbergi sem er með sturtuklefa, upphengdu salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara
Góð aðkoma er að hellulögðu bílaplani með hitaílögnum og einnig hellulagðri stétt. Bílastæðið rúmar 4 bíla og gott rými er við hlið bílaplans.
Garðurinn er gróinn með veröndum, skjólveggjum og gróðri.
Gólfefni eignar: Flísar eru á gólfum eignar og þá er gólfhitakerfi í húsi.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.isSkoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat