Eignavakt

Greiðslumat Aurbjargar

Með léttu greiðslumati Aurbjargar reiknum við þína greiðslugetu út frá þeim forsendum sem þú slærð inn. Þú færð skýra mynd af hámarks kaupgetu, lánsgetu og greiðslubyrði. Greiðslumatið tekur mið af reglum Seðlabanka Íslands um hámarks greiðslubyrði.

Er eignin innan greiðslugetu?

Með léttu greiðslumati Aurbjargar getur þú séð hvort eignir séu innan þinnar greiðslugetu. Þú getur leitað markvisst eingöngu að eignum sem henta þínum fjárhag og fengið skýra mynd af því hvað þú ræður við. Þannig sparar þú tíma, forðast óþarfa vonbrigði og tekur upplýstar ákvarðanir þegar kemur að fasteignakaupum.

Reglur Seðlabanka Íslands um greiðslubyrði

Í útreikningum greiðslumats Aurbjargar er tekið mið af reglum Seðlabanka Íslands um greiðslubyrði, ólíkt flestum bráðabirgða greiðslumötum. Samkvæmt þeim má mánaðarleg greiðsla af lánum ekki vera hærri en 35% af ráðstöfunartekjum lántakanda eða 40% ef um fyrstu kaupendur er að ræða
Reglur Seðlabanka Íslands um greiðslubyrði

Kaupgeta, lánsgeta og greiðslugeta

Með greiðslumati Aurbjargar færðu upplýsingar um kaupgetu, lánsgetu og greiðslugetu. Kaupgeta segir til um hversu dýra eign þú getur keypt, lánsgeta segir til um hámarks lán sem þú getur fengið hjá lánastofnun og greiðslugeta segir til um hvað þú mátt og getur greitt í mánaðarlega greiðslu.
Kaupgeta, lánsgeta og greiðslugeta
Aurbjörg finds opportunities in household finances
Let Aurbjörg monitor the market and help you make better financial decisions.
Aurbjörg
Aurbjörg goal is to increase financial literacy, increase transparency and help you make more informed and better financial decisions.
RannisTaekniþrounarsjod
© 2017-2026 • Aurbjörg ehf. • 430518-1430 • Lágmúla 9 • 108 Reykjavík
TikTokFacebookInstagram