Endurfjármögnun húsnæðislána
Endurfjármögnun húsnæðislána

Endurfjármögnun húsnæðislána

Hér koma nokkrar ástæður sem ættu að fá þig til að hugsa um endurfjármögnun.

•  Lánakjör breytast.
•  Vextir og afborganir á núverandi láni geta hækkað.
•  Ný lán geta verið hagstæðari og betri en núverandi lán á vissum tímapunkti.
•  Kannski vantar þig viðbótarfjármagn í framkvæmdir eða fasteignakaup og þá er meðal annars hægt að bregðast við með því að endurfjármagna lán.

Það er mun algengara í dag að endurfjármagna húsnæðislán en áður, því lánamarkaðurinn breytist hratt. Bara frá árinu 2000 hafa Íslendingar gengið gegnum þrjár efnahagslægðir. Allt hafði þetta mikil áhrif á íbúðaverð og lánamarkað. Og þá er gott að hafa þekkingu til að geta brugðist við.

Til að átta þig á möguleikum þínum varðandi endurfjármögnun, þá þarftu að hafa þetta í huga:

1. Hvar ertu með „lánsrétt“?
2. Hvaða lánamöguleikar eru í boði?
3. Hvaða lánstími er í boði?

Hér er stutt myndband sem sýnir betur hvað þarf að hafa í huga við endurfjármögnun.

Ef þú ert með áskrift að Aurbjörgu, þá getur þú bæði notast við Lánskjaravakt Aurbjargar og Húsnæðislánareiknivél Aurbjargar og þessi tól koma með hugmyndir að endurfjármögnun á þeim húsnæðislánum sem þú ert með skráð. 

Ferlið er mjög einfalt.

Ef við byrjum á að skoða Lánskjaravaktina, þá skráir þú þitt lán og þá fer Lánskjaravaktin sjálfkrafa af stað. Hún leitar af betri lánum, miðað við þær stillingar sem þú velur og sendir þér tölvupóst þegar betri kjör bjóðast. 

Þú stillir nákvæmlega hvaða lán þú vilt að Lánskjaravaktin láti þig vita af. Þurfa vextirnir að vera x lágir? Verðtryggt eða Óverðtryggt? Hjá hvaða lánastofnunum viltu að við vöktum lán hjá?

Lánskjaravakt Aurbjargar!

Húsnæðislánareiknivél Aurbjargar býður einnig upp á endurfjármögnunarmöguleika. Þar getur þú meira leikið þér með lánstíma og lánsupphæð lánsins. 

Aurbjörg finds opportunities in household finances
Let Aurbjörg monitor the market and help you make better financial decisions.
Aurbjörg
Aurbjörg goal is to increase financial literacy, increase transparency and help you make more informed and better financial decisions.
RannisTaekniþrounarsjod
© 2017-2026 • Aurbjörg ehf. • 430518-1430 • Lágmúla 9 • 108 Reykjavík
TikTokFacebookInstagram