Aurbjörg

Sunnusmári 22 - 0036, 201 Kópavogur

Sölusaga fasteignar. Skráð 11.06.2025
Sunnusmári 22
Sunnusmári 22
Sunnusmári 22
Sunnusmári 22
Sunnusmári 22
92.900.000 kr.
865.797 kr./m²
4
Herb.
3
Svefnherb.
1
Baðh.
107,3
Fermetrar
Tegund
Fjölbýli
Byggt
2019
Fasteignamat
82.850.000 kr.
Brunabótamat
61.620.000 kr.
Lýsing 1

Nýtt á skrá! Sunnusmári 22 - Bókið skoðun.

Lind fasteignasala / Tara Sif Birgisdóttir lögg. fasteignasali kynna glæsilega 4ra herbergja 107,3 fermetra íbúð á jarðhæð með mikilli lofthæð (tæpir 3 metrar) yfir allri íbúðinni í nýlegu og vönduðu fjölbýli með lyftu og stórri afgirtri viðarverönd við Sunnusmára 22 í Kópavogi. Bílastæði (best staðsetta stæðið við inngang inn í sameign) er staðsett í lokaðri bílageymslu. Sérgeymsla er 4,7 fermetrar að stærð og staðsett í geymslugangi hússins. Þvottarými er staðsett innan íbúðar.

Húsið er afar fallegt og vandað, byggt árið 2019. Húsið er klætt og viðhaldslítið með fallega frágenginni lóð. Hellulagðar stéttar fyrir framan hús. Sameiginleg stæði fyrir framan hús. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Myndavéladyrasími er í íbúð og er sameign snyrtileg og til fyrirmyndar. Fallegar innréttingar eru í íbúðinni.

Sunnusmári er nýtt hverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir, skóla og leikskóla. Sunnusmári er frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í íbúðarhverfi þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni.

Lýsing eignar:

Forstofa: Með harðparketi á gólfi og góðum skápum.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri ljósri eldhúsinnréttingu og tvöföldum Samsung kæliskáp. Stál Electrolux bakaraofn, innb. uppþvottavél og spansuðu helluborð. Gluggi til norðurs og lýsing undir efri skápum. Gott skápa- og vinnupláss. Eldhús er opið við stofu/borðstofu.
Stofa: Er rúmgóð með harðparketi á gólfi. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Gluggar til vesturs og norðurs. Útgengi á stóra verönd frá stofu.
Verönd: Viðarverönd er stór og afgirt. Útgengi frá stofu.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með harðparketi á gólfi og glugga til vesturs. Innan hjónaherbergis er fataherbergi.
Fataherbergi: Með harðparketi á gólfi og opnum fataskápum (hurðir eru til).
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til vesturs.
Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til vesturs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Gólfhiti er í baðherbergi. Flísalögð sturta, upph. salerni, handklæðaofn og falleg innrétting við vask. Gott skápapláss og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.

Bílastæði: Er vel staðsett (líklega best staðsetta stæðið) í lokuðum og upphituðum bílakjallara. Rafhleðslustöð er komin við stæði.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla: Er staðsett í sameign hússins. 
Sér geymsla: Er staðsett í geymslugangi hússins. Geymsla er 4,7 fermetrar að stærð.

Húsið að utan: Lítur vel út. Viðhaldslítið og nýlegt klætt hús. 
Lóðin: Er frágengin, vel hirt, tyrfðar flatir og hellulagðar stéttar. Sameiginleg bílastæði á lóð.

Allar nánari upplýsingar veita:
Tara Sif Birgisdóttir lögg. fasteignasali í síma 847-8584 eða á netfanginu tara@fastlind.is

Auglýsingasaga

Skoðaðu auglýsingasögu þessarar íbúðar á minni Aurbjörg.

25 myndir
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
Dags.StærðFermetraverðÁsett
30.06.2025 Nánar107,3865.797 kr.92.900.000 kr.
27.06.2025 Nánar107,3865.797 kr.92.900.000 kr.
25.06.2025 Nánar107,3865.797 kr.92.900.000 kr.
22.06.2025 Nánar107,3865.797 kr.92.900.000 kr.
16.06.2025 Nánar107,3865.797 kr.92.900.000 kr.
11.06.2025 Nánar107,3865.797 kr.92.900.000 kr.

Þinglýstir kaupsamningar

Dags.Kaupverð
19. september 202055.900.000 kr.
Aurbjörg finnur tækifæri í fjármálum heimilisins
Láttu Aurbjörgu standa vaktina og hjálpa þér að taka betri ákvarðanir í fjármálum.
Gerast áskrifandi
Aurbjörg
Markmið Aurbjargar er að auka fjármálalæsi, auka gagnsæi og aðstoða þig við að taka upplýstari og betri ákvarðanir í fjármálum.
RannisTaekniþrounarsjod
© 2017-2025 • Aurbjörg ehf. • 430518-1430 • Lágmúla 9 • 108 Reykjavík