Aurbjörg

Hringhamar 15 - 0104, 221 Hafnarfjörður

Sölusaga fasteignar. Skráð 29.09.2024
Hringhamar 15
Hringhamar 15
Hringhamar 15
Hringhamar 15
Hringhamar 15
66.900.000 kr.
744.160 kr./m²
3
Herb.
2
Svefnherb.
1
Baðh.
89,9
Fermetrar
Tegund
Fjölbýli
Byggt
2023
Fasteignamat
28.100.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Lýsing 1
Guðrún Þórhalla og Guðmundur Þór Júlíusson löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna:Hringhamar 13-15 í Hamranesinu, Hafnarfirði. Glæsilegar nýjar íbúðir í fallegu og sérlega vönduðu fjölbýlishúsi sem byggt er af traustum verkataka Mótx.Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna. Allar íbúðir eru útbúnar með sérstöku loftræstiskerfi. Kerfið hefur loftskipti í íbúðinni með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu, og soga lofti út úr baði, þvottahúsi og eldhúsi.Hringhamar.is - Heimasíða verkefnisins.Íbúð 104: 89,9 fm 3ja herbergja íbúð á 1. Íbúðin er 86,0 fm ásamt 3,9 fm geymslu og sér þvottahús innan íbúðar. Athuga aukin lofthæð er í eigninni sem gerir hana ennþá glæsilegri. Bókið skoðun hjá Guðrúnu í síma 820-0490 eða með tölvupósti á netfangið eða á Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið  Frekari upplýsingar um eignirnar:Gólf íbúða eru fleytt og tilbúin fyrir endanlegt gólfefni, nema í baðherbergi og í þvottahúsi en þar eru flísar á gólfum. Einnig eru flísar á veggjum baðherbergja, flísar eru frá Parka. Fataskápar í herbergjum og forstofu eru af vandaðri gerð frá Axis. Borðplötur eru í eldhúsi, baði og þvottahúsi þar sem við á og eru frá Axis.Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis ásamt vaski og Grohe blöndunartækjum frá Byko. Helluborð og blástursofn eru af gerðinni AEG frá Ormsson (sjá nánar á www.ormsson.is) Gufugleypir í eldhúsi er einnig frá Ormsson.Baðherbergi: Baðinnrétting kemur frá Axis. Hreinlætistæki og handklæðaofn eru frá Byko. Salernið er upphengt og innbyggt. Hitastýrð blöndunartæki verða við sturtu. Gólf eru flísalögð og veggir að hluta upp í loftLoftræsting: Sérstakt loftræstikerfi er fyrir hverja íbúð. Kerfið hefur loftskipti í íbúðinni með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu, og soga lofti út úr baði, þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu og nýtir við bestu aðstæður um 80% af varmanum. Kerfið er með loftsíum og er allt loft sem kemur inn síað. Ekki á að vera þörf á að opna glugga í íbúðinni til loftunnar.Frágangur sameignar: Anddyri/stigahús er lokað og er það flísalagt á aðkomuhæð með uppsettum póstkössum. Stigar og stigapallar eru teppalagðir, handrið eru á stigagöngum. Allar útidyrahurðir frágengnar og er rafmagnsopnun á aðalinngöngum. Sameign er upphituð með ofnakerfi. Raflagnir í sameign eru fullbúnar með ljósum, sbr. teikningar. Loftræstilagnir eru lagðar skv. teikningu.Sameign: Í bílgeymslu er lagt grunnkerfi fyrir bílhleðslu. Eigendur stæða í bílgeymslu geta sett upp eigin hleðslustöð og tengt inn á grunnkerfi bílgeymsluSkólar og leikskólar eru í nágrenni og eru öruggar göngu- og hjólaleiðir að þeim. Einnig er fyrirhugað að nýr leikskóli rísi í næsta nágrenni.Hverfið er í nálægð við náttúru og er staðsetningin einstök með tilliti til útivistar. Í næsta nágrenni er Ástjörn, Hvaleyrarvatn og ein vinsælasta gönguleiðin í Hafnarfirði, upp á Helgafell.MótX ehf. er byggingaraðili verkefnisins og eigandi. MótX ehf. er alhliða byggingafélag og var stofnað árið 2005 og hefur starfað óslitið síðan. MótX ehf. hefur getið sér gott orð sem framleiðandi íbúðar- og iðnaðarhúsnæðis á þessum tíma. Félagið hefur fengið viðurkenningar, bæði fyrir hönnun bygginga og frágang lóða á nýbyggingasvæði.Allar nánari upplýsingar veita:Guðrún Þórhalla Helgadóttir löggiltur fasteignasali/viðskiptafræðingur í síma 820-0490 eða á netfangið  Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða á netfangið Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Auglýsingasaga

Skoðaðu auglýsingasögu þessarar íbúðar á minni Aurbjörg.

11 myndir
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
apartment
Dags.StærðFermetraverðÁsett
29.09.2024 Nánar89,9744.160 kr.66.900.000 kr.
22.09.2024 Nánar89,9744.160 kr.66.900.000 kr.
03.09.202489,9744.160 kr.66.900.000 kr.
03.09.2024 Nánar89,9744.160 kr.66.900.000 kr.

Þinglýstir kaupsamningar

Dags.Kaupverð
30. september 202466.900.000 kr.
Aurbjörg finnur tækifæri í fjármálum heimilisins
Láttu Aurbjörgu standa vaktina og hjálpa þér að taka betri ákvarðanir í fjármálum.
Gerast áskrifandi
Aurbjörg
Markmið Aurbjargar er að auka fjármálalæsi, auka gagnsæi og aðstoða þig við að taka upplýstari og betri ákvarðanir í fjármálum.
RannisTaekniþrounarsjod
© 2017-2025 • Aurbjörg ehf. • 430518-1430 • Lágmúla 9 • 108 Reykjavík