RE/MAX og Sigríður Guðnadóttir löggiltur fasteignsali kynna: Björt og falleg 2ja herbergja íbúð á 1.hæð í fjölbýlishúsi fyrir 63 ára og eldri á góðum stað í Reykjavík. Húsið er sambyggt félagsmiðstöð á vegum Reykjavíkurborgar og þangað er hægt að sækja félagsstarfsemi og afþreyingu af ýmsu tagi.SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT SENT STRAX! Nánari lýsing: Forstofa / hol með parketi á gólfi.Eldhús og stofa í opnu rými, með parketi á gólfi og ljósri innréttingu, eldavél og viftuháf.Stofan er björt með útgengi út á yfirbyggðar suðursvalir með stórum opnanlegum glugga.Svefnherbergi með korkdúk á gólfi og fataskápum.Geymsla með skápum er innan íbúðar.Baðherbergi með flísum á veggjum, upphengdu salerni, sturtu, hvítri innréttingu og glugga, t.f. fyrir þvottavél á baði.Lítil sérgeymsla á sameignargangi fylgir eigninni.Sameiginlegt þvottahús með vélum í eigu húsfélagsins er á hæðinni.Á hæðinni er góð sameiginleg setustofa og frá henni er útgengt út á baklóðina sem er með grasflöt, fallegum trjágróðri og stórri hellulagðri verönd. Húsvörður er í húsinu.Húsið var viðgert að utan árið 2017 og málað sumarið 2018Nánari upplýsingar gefur Sigríður lgf. í síma 663 3219 eða Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.