Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir : Fallega, bjarta og vel skipulagða 4-5 herbergja íbúð ásamt bílskúr á 2. og hæð við Breiðvang 10 í Hafnarfirði.
Um er að ræða eign sem er skráð skv fmr 142,6 m², þar af er bílskúr 22,3 m² og geymsla í sameign 6,0 fm.Íbúðin hefur verið töluvert endurnýjuð síðustu ár.
Nánari lýsing:Forstofa: komið er inn á rúmgott flísalagt hol. Mjög stór og rúmgóður fataskápur er á svefnherbergisgangi.
Eldhús: eldhúsið er fallegt og bjart með hvítri innréttingu með ljósri borðplötu og flísum á milli efri og neðri skápa. Uppþvottavél er innbyggð og fylgir með, span helluborð með háf yfir og góður borðkrókur. Flísar eru á gólfi og gluggi.
Stofa: stofan er rúmgóð og björt og rúmar einnig borðstofu. Gluggar á tvo vegu og flísar á gólfi. Útgengt er á svalir frá holi.
Þvottahús: inn af eldhúsi er þvottaherbergi með flísum á gólfi, glugga og vaski. Mikið skápapláss
Svefnherbergisgangur: á svefnherbergisgangi eru 3 herbergi, hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi, lausum fataskáp. Barnaherbergin eru 2, með parketi á gólfi.
Baðherbergi: baðherbergið er fallegt og bjart. Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtuaðstöðu, Nýleg hvít innrétting síðan 2023 og opnanlegur gluggi.
Geymsla: í sameign er sér geymsla sem fylgir eigninni og einnig er sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Bílskúr: Sérstæður bílskúr fylgir með rafmagnshurðaopnara og göngudyrum á hurð. Nýlega er búið að skipta um dúk á þaki bílskúrs.
Húsið hefur verið endurnýjað að utan árin 2015-2019
- Búið er að skipta um járn á þaki hússins og þakrennur 2018
- 2016-2017 var hús múrviðgert og málað að utan.
- Nýtt teppi í stigagang og hann málaður 2015
Íbúðin að innan:
- Eldhús Ný innrétting,
-þvottahús tekið í gegn og sett ný innrétting,.
Falleg og björt fjölskylduíbúð á vinsælum stað í Hafnarfirði þar sem stutt er í alla þjónustu svo sem skóla, leikskóla og verslanir.Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.