Lýsing 1
** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - 698-8555 eða **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og vel skipulögð 89,4 m2, 2ja herbergja endaíbúð á 2. hæð, með tvennum svölum til austurs og suðurs, í glæsilegu lyftuhúsi við Bæjarlind 9 í Kópavogi. Eignin er skráð 89,4 m2, þar af íbúð, 81,9, m2 og geymsla 7,5 m2. Íbúðin skiptist í svefnherbergi, gang, stofu, borðstofu, eldhús og baðherbergi. Sérgeymsla er í kjallara og sérmerkt bílastæði á lóð. Samþykki er fyrir svalarlokunum. Frábær staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu verslun og þjónustu í Smáralind, Smáratorgi o.fl. Nánari lýsing:Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.Herbergi er rúmgott með harðparketi á gólfi og góðum fataskáp.Gangur eru með harðparketi á gólfi.Stofa og borðstofa eru í björtu opnu rými með harðparketi á gólfi. Útgengt á svalir til suðurs með fallegu útsýni.Eldhús er með harðparketi á gólfi, eldhúseyju, vandaðri innréttingu frá Axis með steinborðplötum. Innbyggð uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, span helluborð og viftuháfur. Útgengt á rúmgóðar svalir til austurs.Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, opnanlegur gluggi og falleg innrétting frá Axis með steinborðplötu. Sturta með glerskilrúmi, vegghengt salerni, handklæðaofn og innrétting utan um þvottavél og þurrkara.Sérgeymsla er í sameign í kjallara, 7,5 m2.Sérmerkt bílastæði á lóð.Hlutdeild að hjóla- og vagnageymslu í kjallara fylgir eigninni.Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2024 er 68.400.000 kr.Verð kr. 65.900.000,- Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.