Endurfjármögnun Aurbjörg x Auður
Endurfjármögnun Aurbjörg x Auður

Endurfjármögnun Aurbjörg x Auður

Aurbjörg og Auður hafa hafið samstarf sem einfaldar og eykur skilvirkni á endurfjármögnunarferli húsnæðislána!

Nú geta notendur Aurbjargar hafið umsóknarferli hjá Auði beint í gegnum vef Aurbjargar. Markmiðið er að stytta lántökuferlið, gera það einfaldara fyrir neytendur og færa fjármálaþjónustu nær fólki.

Húsnæðislán hjá Auði, dóttur Kviku banka henta vel þeim sem leggja áherslu á eignamyndun. Um er að ræða hagstæð óverðtryggð húsnæðislán fyrir einstaklinga sem eiga meira en 45% eigið fé í fasteign sinni.

Kostir húsnæðislána hjá Auðir

- Breytilegir vextir sem fylgja stýrivöxtum Seðlabanka Íslands að viðbættu álagi
- Lán fyrir allt að 55% af markaðsverði fasteignar
- Ekkert uppgreiðslugjald

Hvernig virkar ferlið

Þú skráir húsnæðislánið þitt í Lánskjaravakt Aurbjargar. Ef þú uppfyllir lánaskilyrði Auðar birtast lánin þeirra í samanburðinum.

Þaðan getur þú smellt á „Sækja um“ og lokið umsókn með rafrænum skilríkjum beint í lánaferli Auðar.

Sækja um - og þú ferð beint í lántökuferli Auðar!

Með þessu verður ferlið bæði hraðara og þægilegra, og þú getur gengið frá umsókninni þegar þér hentar.

Aurbjörg znajduje możliwości w finansach domowych
Pozwól Aurbjörg monitorować rynek i pomagać Ci podejmować lepsze decyzje finansowe.
Aurbjörg
Celem Aurbjörg jest zwiększenie świadomości finansowej, zwiększenie przejrzystości oraz pomoc w podejmowaniu bardziej świadomych i korzystniejszych decyzji finansowych.
RannisTaekniþrounarsjod
© 2017-2026 • Aurbjörg ehf. • 430518-1430 • Lágmúla 9 • 108 Reykjavík
TikTokFacebookInstagram