Hannes Steindórsson kynnir með stolti:
Einkar glæsilega og mikið endurnýjaða hæð við Tjarnargötu í Reykjavík.
Íbúðin er á annarri hæð í steyptu húsi frá 1928. Íbúðin var að mestu uppgerð og endurnýjuð árið 2018.
Mikil lofthæð, fallegir gluggar með loftlistum, plankaparket á gólfi.
Næg bílastæði í kring, nærliggjandi götum ásamt bílastæðahúsi í ráðhúskjallara.Forstofa: Komið er inn í fallegt hol með náttúruflísum á gólfi og innfelldri lýsingu.
Stofur: Glæsilegar samliggjandi stofur með mikilli lofthæð, fallegir listar og gluggar í klassískum stíl til við uppruna hússins. Önnur stofan er nýtt sem svefnherbergi í dag.
Útsýni yfir Ráðhúsið og tjörnina að hluta.Eldhús: Fallegt uppgert eldhús, HTH innrétting með innfelldri lýsingu.
Silestone borðplata frá S. Helgasyni og steinklæðning utan um skorstein frá Brickwebb Boston Mill.Ísskápur, þvottavél og veggfestur örbylgjuofn frá Samsung (fylgir með). Vönduð tæki frá AEG, span helluborð og ofn ásamt innbyggðri uppþvottavél, fylgja með.
Útgengt út á svalir til vesturs frá eldhúsinu.Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi (Carpet vestige frá Flísabúðinni), upphengt salerni og handlaug frá Ísleifi Jónssyni. Sérsmíðaður skápur og innfelld lýsing í lofti.
Svefnherbergi 1: Rúmgott hjónaherbergi með skápum sem snýr inn í bakgarð og því rólegt gott andrúmsloft.
Svefnherbergi 2: Parketlagt svefnherbergi.
Svefnherbergi 3: Stórt parketlagt svefnherbergi með fataskápum í kjallara.
Geymsla: 4,9 fm sérgeymsla í sameign.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús.
Allar upplýsingar veitir: Hannes Steindórsson s.699-5008 hannes@fastlind.is