Miklaborg kynnir: Efri sérhæð með sérinngangi í 2-býli við Langholtsveg 52, 104 Reykjavík, samtals 122,6 FM. Sér bílastæði ásamt bílskúrsrétti. Parket og flísar á gólfum. Þvottahús innan íbúðar. Góðar svalir í suður ásamt sér geymslu fyrir aftan hús. Sameiginlegur garður í góðri rækt. Stutt í margvíslega þjónustu í rótgrónu hverfi. Íbúðin er laus til afhendingar á bilinu 15. ágúst - 1. september 2026. Þessi íbúð á tæp 55% eignahlut í húsi og lóð. Hiti og rafmagn sér, enginn hússjóður.
Velkomið að panta tíma fyrir skoðun.
Nánari upplýsingar gefur Gústaf Adolf lgf., gustaf@miklaborg.is / 895-7205.
Nánari lýsing: Gengið inn um sérinngang, forstofa ásamt geymslu. Steyptur stigi upp, parketlagður. Gott fatahengi á stigapalli. Þegar inn er komið tekur við stórt opið alrými: eldhús, stofa og borðstofa ásamt sjónvarpsherbergi (áður svefnherbergi). Eldhúsið með hvítri innréttingu og góðum tækjum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja. Eyja með góðum hillum. Stórir góðir gluggar í þessu alrými. Tvö stór svefnherbergi m/fataskápum. Baðherbergið er með baðkari, innréttingu, handklæðaofni og glugga. Þvottahús innan íbúðar með innréttingu og vaski. Í heildina góð íbúð með góðu innra skipulagi. Íbúðin er laus til afhendingar á bilinu 15. ágúst - 1. september 2026.
Nánari upplýsingar gefur Gústaf Adolf lgf., gustaf@miklaborg.is / 895-7205.






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu

























| Íbúð | Herbergi | Stærð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|---|---|---|---|
| 4 | 122,60 m² | 94.500.000 kr. 9. júní 2026 | 60.500.000 kr. 3. október 2020 |
| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 09.06.2026 Nánar | 122,6 m² | 770.799 kr. | 94.500.000 kr. |
| Dags. | Kaupverð |
|---|---|
| 3. október 2020 | 60.500.000 kr. |
| 4. september 2018 | 53.500.000 kr. |
| 15. júní 2016 | 38.400.000 kr. |
0101 | - | - | - | 43.600.000 kr. 19. september 2017 |