Einstaklega fallegt og vel skipulagt 5-6 herbergja raðhús á einni hæð ásamt bílskúr við Hnoðravelli í Hafnarfirði.
Eignin er alls 179,7 fm og er bílskúr þar af 30,6 fm.- Aukin lofthæð í stofu og eldhúsi.
- Innfelld lýsing í loftum.
- Gólfsíðir gluggar í stof sem veita góðri birtu inn.
- Gólfhiti í íbúðarhluta
- Stór suður sólpallur með góðum skjólveggjum og heitum potti.
- Snyrtilegur bílskúr sem er flísalagður
- Hiti í bílastæði sem er hellulagt
- Viðhaldslítið hús sem er klætt að utan með flísum.
Nánari lýsing:Rúmgóð
forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Innaf forstofu er
gestasnyrting með upphengdu salerni, opnanlegum glugga og flísum á gólfi.
Eldhús og stofa í björtu alrými með útgengt út á mjög stóran suður sólpall með skjólveggjum og heitum potti, geymsluskúr er á lóð.
Eldhús með hvítri innréttingu, innfelld uppþvottavél og ísskápur. Ofn í vinnuhæð ásamt innfelldum örbylgjuofni með grilli.
Gott skápapláss er í eldhúsinu. Falleg
eldunareyja með spanhelluborði.
Svefnherbergin eru þrjú , öll rúmgóð með skápum og parketi á gólfi.
Gott
Sjónvarpsherbergi með rennihurð, gluggalaust.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með "walk-in"sturtu. Falleg innrétting með góðu geymsluplássi.
Upphengt salerni, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Innangengt úr forstofu er
þvottahús með stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Innrétting og hillur.
Úr þvottahúsi er farið inn
í bílskúr sem er flísalagður og mjög snyrtilegur.
Innaf bílskúr er
herbergi/geymsla ( nýtt í dag sem herbergi) með flísum á gólfi , útgengt út á sólpall.
Ekkert formlegt húsfélag er starfandi í raðhúsalengjunni.
Einstök eign á þessum vinsæla stað á völlunum þar sem stutt er í fallegar gönguleiðir, skóla, leikskóla og matvöruverslanir.
Sjón er sögu ríkari.Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is